Vörur

Aalborg Portland A/S framleiðir mismunandi tegundir af sementi sem er gætt eiginleikum sem henta best til mismunandi nota. Lang stærsti hlutinn af framleiðslunni er seldur í lausu frá birgðarstöð í Helguvík til steypustöðva, eininga- og röraverksmiðja og er dreift með eigin tankbílum beint til viðskiptavina. Sement er duftkennt efni og ef í það er blandað vatn þá á sér stað efnasamruni og úr verður þéttur og harður massi. Ef þessi hörðnun á sér stað í blöndu þar sem jafnframt eru í rétt hlutföll af sandi og möl, þá mun sandurinn og mölin verða hluti af sementeðjunni og úr verður það sem í daglegu tali kallast steypa. Ef möl er ekki sett í blönduna verður til múrblanda, t.d til pússningar. Steypa er mest notaða efni til bygginga- og mannvirkjagerðar og sement er það efni sem veldur því að steypan nær þeim eiginleikum sem sóst er eftir og sem fyrst og fremst veldur styrk steypunnar.

Leitaðir þú að einhverju öðru?

Pakkað sement

Aalborg Portland framleiðir sement sem er pakkað í 25 kg poka selt á brettum með 42 pokum á hverju bretti. Einnig seljum við það í 1500 kg stórsekkjum.

Geymsluþol pakkaðs sements eru 10 mánuðir í lokuðum pakkningum og aðrir 2 mánuðir eftir að búið er að opna pakkningarnar.

Laust sement

Laust sement er afhent í heilumförmum úr tankbílum