Hafðu samband við okkur hér
Sementsafgreiðsla:
Stakksbraut 2
230 Reykjanesbæ
Sími: 421 7950
Panta sement: pontun@aalborg-portland.is
Skrifstofa:
Bæjarlind 4
201 Kópavogi
Sími: 545 4800
Misferli – uppljóstrun
Tilkynningar um misferli
Aalborg Portland Íslandi, sem er hluti af Cementir Group, gerir sér fulla grein fyrir mikilvægi löggjafar um uppljóstranir sem áhrifaríks verkfæris til að koma í veg fyrir ólöglegt athæfi og gera einstaklingum kleift að nýta tjáningarfrelsi sitt sem telst til grundvallarmannréttinda.
Því hefur samstæðan fyrir löngu komið á fót sérstöku tilkynningakerfi þar sem starfsfólk, samstarfsaðilar, stjórnendur og þriðju aðilar geta, án þess að óttast refsiaðgerðir eða hótanir, komið á framfæri öllum upplýsingum um hugsanleg brot, hegðun og starfshætti sem ekki samræmast gildandi reglum, þar á meðal löggjöf Evrópusambandsins, siðareglum samstæðunnar, innri verklagsreglum og skipulagslíkani viðkomandi fyrirtækja samkvæmt ítölskum lagaúrskurði nr. 231/2001.
Hægt er að senda inn tilkynningar með eftirfarandi hætti:
Vefgátt sem gerir öllum hagsmunaaðilum innan sem utan samstæðunnar (starfsfólki, samstarfsaðilum, hluthöfum, félögum o.s.frv.) kleift að senda tilkynningar til innri endurskoðunardeildar og tryggir skilvirk samskipti undir trúnaði eins og krafist er í gildandi reglum.
Nálgast má vefgáttina á sérstakri vefsíðu:
https://cementir.integrityline.com/
Senda má tilkynningar með almennum pósti til:
Cementir Holding
Internal Audit Department
Corso di Francia 200
00191 Rome, Italy
Til að tryggja trúnað skal setja tilkynningar í þrjú umslög: (i) eitt fyrir tengiliðaupplýsingar og almennar upplýsingar um tilkynnanda, (ii) eitt fyrir efni tilkynningarinnar og (iii) þriðja umslagið sem inniheldur bæði fyrsta og annað umslagið.
Einnig er hægt að senda tilkynningar með tölvupósti á:
whistleblowing@cementirholding.it
ethicscommittee@cementirholding.it
Óski tilkynnandi þess er hægt að koma tilkynningu á framfæri á fundi með viðkomandi starfsfólki. Fundurinn verður haldinn innan hæfilegs tíma frá því að óskað er eftir honum og á honum kann tilkynnandi að vera beðinn um að skýra mál sitt eða veita frekari upplýsingar. Með samþykki tilkynnanda verður fundurinn skráður og fær tilkynnandi tækifæri til að fara yfir efni fundargerðarinnar.
Vinsamlegast lestu persónuverndartilkynninguna „Whistleblowing procedure“ (Meðferð tilkynninga um misferli), sem nálgast má í kaflanum um persónuvernd á https://cementir.integrityline.com/ áður en þú sendir inn tilkynningu.
Mikilvægt er að tilkynningar séu nægilega ítarlegar til að hægt sé að bera kennsl á viðkomandi einstaklinga og meint brot sem tilkynnt er um. Móttaka og greining ábendinga og upptaka rannsókna í kjölfarið verður í höndum óháðrar innri endurskoðunardeildar Cementir, sem ein fer með umboð til að taka við upplýsingum og rannsaka meint brot, í samræmi við viðeigandi reglugerðir. Enn fremur gildir lagaleg skylda um trúnað gagnvart bæði tilkynnanda og þeim sem tilkynnt er um.
Meginmarkmiðið er að tryggja ávallt fyllsta trúnað við tilkynnendur og tímanlega og fullnægjandi sannprófun á upplýsingum og/eða atburðum, einnig til að koma í veg fyrir hvers kyns refsigerðir gegn tilkynnendum sem tilkynna í góðri trú.
Þess vegna er þess krafist að samskipti um þetta mál fari eingöngu og beint fram við innri endurskoðunardeild samstæðunnar eftir þar til gerðum leiðum (tilkynningar um misferli og/eða siðanefnd).
Stranglega er bannað að tengja þriðju aðila við hvers kyns samskipti vegna þessa og getur það haft í för með sér saksókn að beiðni þeirra sem málið varðar.