Fyrsta flokks sement í hentugum 25 kg pokum

AALBORG WHITE

AALBORG WHITE®sement er í styrkleikaflokki 52,5 N.

Það hefur mikinn hreinleika og er því mjög gott þegar ná skal fram hvítum lit í steypu og/eða til litunar á steypu til ýmissa sérverkefna.

AALBORG WHITE hefur mikinn styrk og svipaða eiginleika og RAPID.

 

RAPID

RAPID®sement er í styrkleikaflokki 52,5 N.

Það hefur lágt alkalíinnihald og nær miklum styrkleika á skömmum tíma með lítilli hættu á sprungumyndun.

RAPID hentar mjög vel við alhliða steypuvinnu svo sem í sökkla, veggi og gólf. Þrátt fyrir mikinn styrk er hitamyndun í RAPID vel viðunandi og fjöldi rannsókna staðfesta að það uppfyllir allar þær kröfur sem gerðar eru í íslenskum stöðlum og reglugerðum um styrkleika, veðrunar- og alkalíþol.

 

NOTKUNARTAFLA